Gæðastund
Nýtt vörumerki (2025) sem sérhæfir sig í
vörum fyrir börn með það markmiði að efla sjálfsvitund
og tilfinningaþroska. (Vefsíða er í vinnslu)
Fyrsta varan okkar er minnisspilið
Kátur og vinir efla tilfinninaþroska og fæst í vefsölu hér:
Litrík og skemmtileg minnisspil með fígúrum sem upplifa allskonar!
Spilin eru hugsuð til að skapa umræður um líðan og tilfinningar og til að skapa skemmtilegar gæðastundir.
Spilin má nota á ýmsan hátt eftir aldri en eru í formi hefðbundins minnisspils þar sem markmið er að finna 2 eins.
- 16 pör, 32 spil
- Efla minni og fókus
- Efla sjálfsvitund
- Efla tilfinningaþroska
- Efla tjáningu um líðan og tilfinningar
- Fyrir 2 ára og eldri
Dæmi um notkun fyrir þau yngstu:
1. Finna 2 eins án þess að snúa þeim við, eða finna andstæður td Reiður og Glaður. Heitt og kalt osfrv.
2. Ræða hverja fígúru, hvernig líður henni og af mögulega af hverju?
Dæmi: "Hann er reiður því einhver tók bangsann hans"
3. Einfaldur minnissleikur með td 6-8 pörum.
Dæmi um notkun fyrir eldri börn:
1. Hefðbundinn minnisleikur, snúa við og skiptast á að finna 2 eins. Safna eins mörgum pörum og hægt er.
2. Ræða hverja fígúru, hvernig líður henni og af hverju?
3. Spyrja barnið hvort það hafi upplifað þessa tilfinningu einhvetíma og í hvaða aðstæðum? Ef ekki, í hvaða aðstæðum væri líklegt að þessi tilfinning kæmi upp?
4. Raða fígúrum og biðja barnið að velja þá fígúru sem á best við barnið þá stundina, þeas spyrja hvernig líður þér núna, eins og hver af þessum dýrum?
5. Raða fígúrum ef nokkrir eru saman og velja fyrir hvort annað, hvernig sérðu mig í dag? Er ég þreytt, kalt eða kannski glöð eða spennt?








