fyrir þig og þinn hund til að ná árangri.

Frábær nýjung á Íslandi fyrir alla hundaeigendur!
Spurningar og svör varðandi meðlimaaðganginn:
1. Fyrir hverja er meðlimaaðgangurinn
2. Hvernig fæ ég aðgang að meðlimasvæði Hundaþjálfun.is?
Þú einfaldlega smellir á “Nýskráning” og skráir þig. Síðan velur þú annaðhvort að greiða fyrir mánuði eða koma í áskrift. Áskriftin er ódýrari og hægt að segja henni upp hvenær sem er. Ef þú velur áskrift ferðu inná örugga greiðslusíðu Korta.is og gengur frá greiðslu með kreditkorti. Þá opnast aðgangurinn og þú færð notendanafn og lykilorð sent eftir nokkra mínútur ásamt kvittun.
Ef þú velur mánuð eða mánuði leggur þú upphæðina sem þú velur inn
á kt 240482-2909 banki 0162-26-100867. Allar upplýsingar eru farnar með sem trúnaðarmál.
Þegar starfsmenn Hundaþjálfun.is sjá að greiðsla hefur verið móttekin með millifærslu opnast aðgangurinn og þú færð sent notendanafn og lykilorð um hæl.
Ef þú velur að koma í áskrift er síðan mjög einfalt að segja henni upp, þú einfaldlega sendir póst á radgjof@hundatjalfun.is og segist vilja segja upp áskrift og meðlimaaðgangurinn fellur þá út í lok þess mánaðar sem uppsögnin á sér stað.
3. Í hverju fellst meðlimaaðgangurinn?
Þegar þú hefur fengið notendanafn og lykilorð kemstu inn á læsta svæðið okkar
eru þar yfir 150 greinar, myndir og myndbönd, spurningar og svör sem fjalla um hunda og hundaþjálfun. Allt frá hvolpinum, heilsu, atferli hunda og þjálfun og úrlausnir vandamála.
Einnig hefur þú aðgang að spjallborði þar sem þú getur meðal annars spurt fagmann varðandi hegðun hundsins þíns og fengið svar og lesið aðrar spurningar og svör. Nú þegar eru komnar um 50 spurningar á spjallborðið og svör sem sett hafa verið inn á Spurt og Svarað dálk.
4. Hversu lengi tekur það að fá svar við spurningu minni á meðlimasvæðinu?
Heiðrún Villa fer inn á svæðið daglega og svarar þeim spurningum sem koma. Það geta liðið 7-10 virkir dagar áður en svar fæst. Ef þú hefur spurningu gæti svipuð spurning verið nú þegar í Spurt og Svarað dálknum og svar komið.
5. Hvað ef ég sé ekki grein á svæðinu um málefni sem mig langar að lesa um?
Þú getur notað spjallborðið til að koma á framfæri það sem þú vilt lesa um og sett verður upp les/myndefni sem hentar.
6. Hvað ef mig langar að sýna hegðun hundsins míns til að fá útskýringar á henni?
Inni á meðlimasvæðinu eru leiðbeiningar um sendingu myndbands til okkar. Þú getur sent Hundaþjálfun.is myndband af hegðun hundsins þíns og fengið ráð.
8. Hvað ef ég er ósátt/ur við meðlimasvæðið?
Þú getur óskað eftir efni á spjallborðinu sem verður sett upp. Ef þú hinsvegar sérð að meðlimasvæðið er eitthvað sem hentar ekki fyrir þig getur þú sent okkur póst á radgjof@hundatjalfun.is innan 3 daga frá fengnu notendanafni og lykilorði og fengið fulla endurgreiðslu.
Þú styrkir gott málefni!
Stefna Hundaþjálfun.is er einnig að hjálpa hundum sem þurfa annað tækifæri - með því að gerast meðlimur styrkir þú opnun Hundamiðstöðvar sem tekur að sér heimilislausa hunda og þjálfar upp á nýtt ásamt áframhaldandi fræðslu til hundaeigenda. Við þökkum allan stuðning!
Ef þú hefur frekari spurningar sendu okkur póst á radgjof@hundatjalfun.is
"Þakka ykkur! :) Mér finnst þetta alveg æðisleg síða! Ég er með eina 3 mánaða tík og þessi síða hefur hjálpað mér helling og á eftir að koma að góðum notum við þjálfun og uppeldi litlu skvísunnar minnar. Mæli hiklaust með þessari síðu og hef því deilt henni á facebook með vinum og vandamönnum :) Hlakka til að sjá ykkur vaxa og verða enn betri :) Takk kærlega fyrir okkur! Kv. Andrea og tíkin Sara"



